Per mentis leggur mikla áherslu á teymisvinnu - í orði og á borði

Per mentis

Um okkur

Per mentis, sem geðlækningastofa, var stofnað 2021.

 

Á þeim tíma voru aðeins tveir starfsmenn í fyrirtækinu, Kristófer Sigurðsson geðlæknir og Ellen María Þórólfsdóttir heilbrigðisgagnafræðingur, sem starfaði í tímavinnu heimanfrá.
Leigð var aðstaða hjá SÓL sálfræði- og læknisþjónustu.

 

Í byrjun árs 2023 bættist Tanja Guðrún Schiöth geðhjúkrunarfræðingur við. Á vordögum 2024 kom Ellen í fulla vinnu sem skrifstofustjóri.

 

Haustið 2024 bættust svo í hópinn Rut Baldursdóttir geðlæknir, Karen Lind Gunnarsdóttir sálfræðingur og María Unnur Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur.

 

Frá upphafi hefur Per mentis leitast við að hámarka gæði og skilvirkni þjónustunnar.

 

Upplýsingaefni og bæklingar hafa verið skrifaðir og gefnir út til notkunar í starfinu.

 

Sérhæfðar hjúkrunarmóttökur stofnaðar í kringum ýmis viðfangsefni og sívaxandi áhersla á þverfaglegt starf, þar sem skjólstæðingarnir njóta þjónustu fleiri fagstétta innan stofunnar og þjónustan er mótuð í heild.

Starfsmenn

Ellen María Þórólfsdóttir

Skrifstofustjóri

Karen Lind Gunnarsdóttir

Sálfræðingur

Kristófer Sigurðsson

Framkvæmdastjóri

Rut Baldursdóttir

Geðlæknir

Tanja Guðrún Sch. Hjörvar

Framkvæmdastjóri hjúkrunar / Geðhjúkrunarfræðingur

María Unnur Ólafsdóttir

Hjúkrunarfræðingur
WhatsApp Image 2024-12-18 at 11.22.28 (3)

Markmið og gildi

Sýn okkar

Markmið okkar er að veita samfellda þjónustu í almennum geðlækningum, með aðaláherslu á lyndis- og taugaþroskaraskanir. Við náum þessu markmiði með því að vinna þétt saman í teymi og með því að hugsa bæði innan og utan kassans þegar kemur að lausnum og verkferlum.