Spurningar vegna skimunar m.t.t. ADHD
Skimun er fyrsta skrefið í ADHD uppvinnslu/greiningu. Mikilvægt er að greina satt og rétt frá. Ef þú veist ekki svarið við spurningunni er betra að sleppa henni eða merkja í „Veit ekki“ þar sem boðið er upp á þann möguleika.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að staðfesta eyðublaðið með rafrænum skilríkjum. Þetta er gert þegar eyðublaðið er sent inn.
Skimun samanstendur annars vegar af þessum spurningum og hins vegar viðtali og skoðun. Í lok skimunar gefum við álit okkar á því hvort ADHD sé líkleg orsök vanda þíns eða ekki. Ef við teljum ADHD líklega orsök býðst þér að halda áfram í ferlinu.
ADHD uppvinnsla/greining er nokkuð kostnaðarsöm og við hvetjum þig til þess að skoða verðskrá okkar á https://permentis.is/verdskrar/ svo ekkert komi á óvart þar.